Ofurkonan vs. tradwife

Schedule

Tue Oct 20 2026 at 08:00 pm to 09:45 pm

UTC+00:00
Location

Hallveigarstígur 1, 105 Reykjavík, Iceland | Reykjav, RE

Advertisement
Konur búa í dag við meira frelsi og fleiri tækifæri en kynslóðirnar á undan. Á sama tíma upplifa margar þeirra kröfur um að standa sig fullkomlega í námi og starfi, sinna börnum og fjölskyldu, eiga óaðfinnanlegt heimili, rækta samböndin og helst sjálfar sig líka. Undanfarin misseri hafa hugmyndir um hefðbundið fjölskyldulíf og kynhlutverk sótt í sig veðrið og fyrir sumum virðast þær jafnvel fela í sér ákveðna uppreisn gegn hraða, álagi og kröfum nútímasamfélagsins.
Hvað segir það okkur? Eru kröfur til kvenna að breytast? Hvernig hefur móðurhlutverkið breyst? Og hvert er hlutverk stjórnmálanna? Hvernig sköpum við samfélag þar sem konur og fjölskyldur geta lifað góðu lífi – án þess að svarið við álagi samtímans verði afturhvarf til gamalla kynhlutverka?
Sóley Tómasdóttir og Sunna Símonardóttir ræða móðurhlutverkið, femínisma og fjölskyldupólitík framtíðarinnar.
Sunna er lektor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri. Hún hefur sérhæft sig í rannsóknum á foreldrahlutverkinu, kyngervi og fæðingartíðni.
Sóley er uppeldis-, kynja- og fjölbreytileikafræðingur. Í störfum sínum hagnýtir hún rannsóknir í kynja- og fjölbreytleikafræðum i bland við eigin reynslu af aktívisma, stjórnmálum, viðskiptum og rekstri.
Eftir erindi frummælenda verður gefinn góður tími til umræðna.
Hlökkum til að sjá sem flest á fundinum! Fólk af öllum kynjum velkomið og endilega bjóðið nýju fólki með á fundinn!
Advertisement

Where is it happening?

Hallveigarstígur 1, 105 Reykjavík, Iceland, Hallveigarstígur 1, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Kvennahreyfing Samfylkingarinnar
Host or PublisherKvennahreyfing Samfylkingarinnar

Ask AI if this event suits you