Miklihvellur í Dölunum - skapandi óreiða í friðsælli sveit.
Advertisement
Rithöfundarnir Jón Kalman Stefánsson og Sigríður Hagalín Björnsdóttir hafa skrifað margar skáldsögur sem gerast í Dölunum, eins og Sumarljós og svo kemur nóttin og sveitatrílógíu Jóns Kalmans, og Hamingju þessa heims eftir Sigríði Hagalín. Þau hafa þar með gengið til liðs við þá fjölmörgu höfunda sem hafa leitað fanga í Dölunum allt frá upphafi sagnaritunar á Íslandi, en hvað er það sem gerir héraðið að slíku gósenlandi skáldskaparins? Svífur hann yfir vötnum Miðdala, leynist hann í kistu undir sundlauginni í Sælingsdal, eða er hann í pylsupottinum í sjoppunni í Búðardal? Höfundarnir leita svara við spurningunni í bókmenntapartíi í Dalíu og draga hvergi af sér.
Advertisement
Where is it happening?
Dalía Búðardal, Miðbraut 15 ,Western Region, Iceland, Reykjav
Event Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Host or PublisherBæjarhátíð í Búðardal










