Mannamót Markaðsstofa landshlutanna 2026
Schedule
Thu Jan 15 2026 at 12:00 pm to 05:00 pm
UTC+00:00Location
Kórinn | Kopavogur, GU
Advertisement
Nú er búið að opna fyrir skráningar á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna, sem verða haldin í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 15. janúar 2026 frá klukkan 12 til 17.Mannamót er fjölmennasti viðburðurinn í íslenskri ferðaþjónustu þar sem rúmlega þúsund gestir hafa mætt og sýnendur verið um 250 talsins. Tilgangur Mannamóta er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustufólki sem staðsett er á höfuðborgarsvæðinu. Þar er hægt að kynnast betur fólki í ferðaþjónustu og fjölmörgum fagaðilum sem koma á Mannamót.
Ísland hefur upp á margt að bjóða, allan ársins hring og á Mannamótum eru sýnendur hvattir til þess að leggja sérstaka áherslu á það sem boðið er upp á yfir vetrartímann. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Isavia og Norlandair.
Athugið að aðeins samstarfsfyrirtækjum Markaðsstofa landshlutanna gefst kostur á að skrá sig á Mannamót til þess að sýna og kynna sitt fyrirtæki. Allar markaðsstofurnar munu bjóða sínum samstarfsfyrirtækjum, sem skrá sig á Mannamót, á sérstakan undirbúningsfund þar sem farið verður yfir hvað gott er að hafa í huga fyrir svona sýningu, hvaða kynningarefni hentar best og svo framvegis. Þessir fundir verða auglýstir þegar nær dregur.
Skráningu sýnenda lýkur þann 18. desember 2025. Verð fyrir sýnendur er 34.900+ vsk.
Smelltu á þennan hlekk til að skrá þig sem sýnanda: https://www.markadsstofur.is/skraningsynenda
Smelltu hér fyrir upplýsingasíðu fyrir sýnendur: https://www.markadsstofur.is/is/vidburdir/mannamot/synendur
Skráning gesta
Öllum er frjálst að mæta á viðburðinn og enginn aðgangseyrir er fyrir gesti. Við biðjum þó þá sem ætla að koma sem gestir að skrá sig svo hægt sé að áætla fjöldann.
Smelltu á þennan hlekk til að skrá þig sem gest: https://www.markadsstofur.is/skraninggesta
Smelltu hér fyrir upplýsingasíðu fyrir gesti: https://www.markadsstofur.is/is/vidburdir/mannamot/gestir
Advertisement
Where is it happening?
Kórinn, Vallakór 14, 203 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.






