Lesið á milli línanna
Schedule
Thu May 07 2026 at 03:00 pm to 04:00 pm
UTC+00:00Location
Bókasafn Kópavogs | Kopavogur, GU
Advertisement
Á fundinum 7. maí tökum við fyrir bókina Ólæsinginn sem kunni að reikna eftir Jonas Jonasson.͈Ég var getin á dansgólfi í Buenos Aires árið 1927.˝
Fimm ára gömul fer Nombeko Mayeki að vinna við að hreinsa kamra í Soweto í Suður-Afríku. Hún er óskólagengin og munaðarlaus en kemst til mannvirðinga í hreinsunardeildinni þegar í ljós kemur að þótt hún sé ólæs er hún ansi leikin með tölur.
Örlögin haga því svo að stúlkan úr fátækrahverfinu flækist inn í alþjóðlega stjórnmálarefskák, verður eftirlýst af alræmdustu leyniþjónustu veraldar og kynnist bræðrum á norðurslóðum sem eru nákvæmlega eins en þó gjörólíkir. Þá fer af stað ótrúleg atburðarás sem ógnar heiminum – eins og heimurinn hefur hingað til þekkt sig.
Hjartanlega velkomnar!
Bókaklúbburinn hentar öllum hressum konum sem vilja hittast, lesa á milli línanna og spjalla um yndislestur á léttu nótunum. Lesin er ein bók á mánuði sem er svo rædd fyrsta fimmtudag í mánuði á fundum klúbbsins.
Allar konur velkomnar á meðan húsrúm leyfir. Hlökkum til að hitta ykkur!
Fylgist með í Facebook-hópnum Lesið á milli línanna | Bókasafn Kópavogs.
Advertisement
Where is it happening?
Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6A, 200 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.