KVIKUSKRIF // 4 vikna námskeið með Guðrúnu Evu & Láru

Schedule

Wed, 11 Feb, 2026 at 06:30 pm

UTC+00:00

Location

MÓAR studio | Hafnarfjörður, GU

Advertisement
KVIKUSKRIF með Guðrúnu Evu Mínervudóttur og Láru Rúnarsdóttur er fjögurra vikna námskeið í Móum Studio. Kennt er á miðvikudögum frá kl. 18.30 - 20.30 (gott að gera ráð fyrir 30 mín aukalega ef þarf) frá 11. feb - 4. mars. Hámarksfjöldi er 15 manns.
Fyrsti tíminn leiðir okkur inn að kviku með hugleiðslu, verkefnum, deilingu og slökun. Á milli tíma skrifum við okkur dýpra, en í samverunni við eldinn fáum við tækifæri til að deila og hlusta á kvikuskrif annarra. Fimm lesa upp í hverjum tíma og eftir hvern upplestur eru umræður um textann sem Guðrún Eva leiðir. Samræðan er römmuð inn af hugleiðslu, kakóathöfn og djúpslökun við lifandi tónlist.
Við lítum á kvikuskrifin sem bókmenntatexta, skrifaðan með áheyrendur og lesendur í huga. Því færum við okkur frá dagbókarskrifum, þar sem orð liggja í felum, yfir í það að snerta aðrar sálir með orðum sem fá að sjást og heyrast.
Ferlið getur verið afar heilandi og djúpt, það getur hreyft við á óþægilegan hátt eða mýkt gamlar sorgir. En það getur einnig tendrað eitthvað stórbrotið sem legið hefur í dvala.
Trúnaði er heitið og biðjum við þátttakendur að virða það.
Guðrún Eva og Lára Rúnars leiða saman hesta sína á þessu námskeiði sem þær hafa í hyggju að halda áfram að móta og fága eftir leiðbeiningu og hollráðum ykkar sem takið þátt.
Guðrún Eva er rithöfundur og ritlistarkennari
Lára Rúnars er eigandi Móa, tónlistarkona, kynjafræðingur og jógakennari.
Verð 49.000 & innifalið aðgangur að öllum opnum tímum Móa Studio á meðan á námskeiði stendur. Hægt er að fá kvittun fyrir endurgreiðslu úr stéttarfélagi.
Skráning hér:
https://shop.moarstudio.is/products/kvikuskrif-4-vikna-namskeid-med-gudrunu-evu-laru-mid-11-feb
20% afsláttur fyrir áskriftahafa. 10% afsláttur fyrir fólk með örorku, námsfólk & eldra fólk. Fyrir afsláttinn sendið póst á [email protected].
Umsagnir með síðasta námskeiði KVIKUSKRIFA.
“Kvikuskrif er námskeið sem leiddi mig nákvæmlega þangað sem ég vildi fara. Mig langaði að komast að því hvað ég þyrfti að segja, finna leið að því sem mér lá helst á hjarta og skapa frásögn, mína sögu og segja hana upphátt. Þær Lára og Guðrún Eva veittu mér einstaka umgjörð og leiðsögn, örugga leið til að komast nær sjálfri mér og trúa á sköpunarkraftinn innra með mér. Þetta er námskeið fyrir þau sem vilja skrifa af einlægni og alvöru, hvort sem það er fyrir sig sjálf eða allan heiminn.” – Ágústa
“Þetta námskeið var ekki bara um skrif, heldur ferðalag inn á við. Ég hafði aldrei skrifað áður, en í gegnum krefjandi og fallegt ferli fann ég röddina mína og óx á þann hátt sem erfitt er að setja í orð." - Ásta Soffía
Advertisement

Where is it happening?

MÓAR studio, Bolholt 4, 2.hæð,Grindavík, Hafnarfjörður, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Icon
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
M\u00d3AR studio

Host or Publisher MÓAR studio

Ask AI if this event suits you:

Discover More Events in Hafnarfjörður

90's Britpop veisla \u00ed B\u00e6jarb\u00ed\u00f3
Fri, 13 Feb at 08:00 pm 90's Britpop veisla í Bæjarbíó

Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður, Iceland

Bremsulaus Uppistand
Sat, 21 Feb at 08:00 pm Bremsulaus Uppistand

Bæjarbíó

Garnival 2026
Sun, 01 Mar at 12:00 pm Garnival 2026

Haukar Ásvellir

FESTIVALS
Gr\u00e6nn dagur til minningar um J\u00f6kul Frosta
Mon, 02 Mar at 03:00 pm Grænn dagur til minningar um Jökul Frosta

World Class Iceland (World Class Tjarnarvöllum)

L\u00e9ttsveit P\u00e9turs V \u00e1samt Soff\u00eda Karlsd\u00f3ttur | KONA Plata Bubba 40 \u00e1ra
Wed, 11 Mar at 08:00 pm Léttsveit Péturs V ásamt Soffía Karlsdóttur | KONA Plata Bubba 40 ára

Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður, Iceland

MUSIC ENTERTAINMENT

What's Happening Next in Hafnarfjörður?

Discover Hafnarfjörður Events