KUNDALINI ACTIVATION með Lifandi Tónferðalagi & Cacao 💫

Schedule

Tue Sep 15 2026 at 08:00 pm to 10:00 pm

UTC+00:00
Location

REYR Studio | Reykjav, RE

Advertisement
KUNDALINI ACTIVATION með Lifandi Tónferðalagi & Cacao 💫 með Danna og Lovísu
Komdu að stilla "aðal" hljóðfærið þitt, líkama og orku ✨

Stundin hefst á hjartaopnandi Cacao sem hjálpar þér að setjast í hjartaorkuna þína og slökunarástand inn í líkamann þinn.
Við notum 100% hreint, lífrænt og heilsubætandi Cacao frá Perú.
KUNDALINI ACTIVATION er Djúp Orkuvinna ✨

Við vinnum með þína innri orku, hjálpum þér að komast nær kjarnanum. Mikil sjálfsvinna og heilun á sér stað í þessum tímum. Ákveðið hugleiðslu ástand sem hjálpar þér að vinna úr streitu, orkuleysi, vanlíðan, bætir svefn, eykur sköpun og þannig má lengi telja.
Kundalini lífskrafturinn býr innra með okkur öllum.
Fólk upplifir allt milli þess að finna fyrir djúpslökun, losa um allskonar tilfinningar. Getur fundið fyrir titring og þörf fyrir hreyfingu. En flestir eiga það sameiginlegt að nærast af þessum tíma, tengjast betur sjálfum sér og líða almennt mun betur.
KUNDALINI ACTIVATION er smjör fyrir taugakerfið þitt
Við hefjum stundina oft á öndunaræfingum eða hristing eftir því hvað við á og til þess að keyra orkuna í gang. Þú liggur á dýnu í rúmlega klukkutíma.
Í orkuvinnunni snertum við nokkra orkupunkta líkamans en vinnum líka með orkuna án snertinga fyrir ofan ykkur. Það má biðja um enga snertingu ef það hentar þér ekki.
Í tímanum er mögnuð lifandi tónlist og spilar hún stórt hlutverk á ferðalaginu þar sem tónarnir smjúga inn í orkuna þína og líkama og hreyfa við því sem þú þarft á að halda.
Komdu í þægilegum fatnaði og með augngrímu eða augnhvílu með þér (við erum einnig með augngrímur til láns).
Verð: 9500 kr
Þú tryggir þér pláss með því að kaupa miða í "tickets"
Hlökkum til að taka á móti ykkur
Danni leiðir lifandi tónferðalag & Lovísa leiðir KUNDALINI ACTIVATION orkuvinnu.
Viðburðurinn er haldinn í REYR Studio Fiskislóð 31 B, gengið inn bílaþvottastöðvarmegin.
...
Danni TRPTYCH er Tónlistarmaður, Tónheilari og Reikimeistari.
trptych.com
Lovísa er heilari, Reikimeistari, KUNDALINI orkumeðferðaraðili, tónheilari, jógakennari.
loveyoga.is
Þú finnur fleiri viðburði á www.lifdubeturmedther.is/vidburdir
Advertisement

Where is it happening?

REYR Studio, Fiskislóð 31, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Lif\u00f0u betur me\u00f0 \u00fe\u00e9r
Host or PublisherLifðu betur með þér

Ask AI if this event suits you