Kona - Vinnur úr kulnun í gegnum sköpun

Schedule

Thu Apr 30 2026 at 06:00 pm to 09:00 pm

UTC+00:00

Location

Strandgata 19, 220 Hafnarfjörður, Iceland | Hafnarfjörður, GU

Advertisement
Sýningin er afrakstur ferlisins við að komast til baka úr kulnun og leiðir áhorfandann frá taugaáfalli og kvíða yfir í að skoða tilfinningarnar og að lokum sættast við að sleppa tökunum. Tilfinningar geta skollið á af slíkum krafti að líkaminn bregst við með áþreifanlegum sársauka, en stundum þurfa þær einfaldlega að fá að ganga yfir mann eins og öldugangur. Ég var svo föst í spurningunni „af hverju?“ þegar kvíðinn kom að ég læsti hann inni og magnaði hann upp, í stað þess að leyfa honum einfaldlega að líða hjá. Þegar ég hugsa um þetta rifjast alltaf upp fyrir mér setning úr kvikmyndinni Elizabethtown: „You have five minutes to wallow in the delicious misery, embrace it, discard it and proceed.“
Í ferlinu sjálfu vann ég úr tvívíðu formi yfir í þrívítt og síðan aftur í tvívítt. Ferlið var í sjálfu sér mjög heilandi. Ég byrjaði í skissubókinni minni og vissi í raun ekkert hvert það myndi leiða mig, en þar varð til myndræn túlkun á sálarástandi mínu. Út frá því myndefni ákvað ég að móta konur á ólíkum stöðum í ferlinu og túlka þær síðan aftur yfir í tvívítt form. Eftir að hafa unnið svona djúpt með tilfinningarnar fann ég á eigin skinni hvernig listaþerapía virkar og hvernig sköpun getur hjálpað manni út úr þjáningunni. Ég fann aftur hluta af sjálfri mér sem ég hafði týnt í gegnum móðurhlutverkið, nám og vinnu. Að lokum varð til heil sería sem segir sögu konu sem vinnur sig út úr kulnun í gegnum sköpun.
Unnur Gígja Ingimundardóttir (f. 1988) á að baki sér fjölbreytt úrval listáfanga, bæði frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti og Iðnskólanum í Hafnarfirði, en útskrifaðist að lokum af fatahönnunarbraut frá FB. Hún hefur lokið B.Ed.-gráðu í grunnskólakennslu með áherslu á list- og verkgreinar og mun ljúka meistaragráðu í kennslu list- og verkgreina í júní 2026. Meðfram námi hefur hún starfað sem leiðbeinandi í grunnskóla, fyrst í forfallakennslu og síðar sem umsjónarkennari. Í gegnum árin hefur Unnur ávallt fengist við eitthvað skapandi í frítíma sínum, hvort sem það er að teikna, mála, sauma eða skrifa, en það er fyrst núna sem hún stígur fram sem listamaður.
Sýningarstjórn: Elvar Gunnarsson
Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 30. apríl frá 18:00-21:00 og þú ert velkomin !
Aðrir opnunartímar:

Fös. 1. maí 13:00 - 18:00
Lau. 2. maí 13:00 -17:00
Sun. 3. maí 14:00 - 17:00
LG // Litla Gallerý er styrkt af Menningar og ferðamálanefnd
Hafnarfjarðarbæjar vegna viðburðarins

-----------------------------

The exhibition is the result of a process of finding my way back from burnout. It traces a journey from nervous collapse and anxiety toward examining emotions and, ultimately, accepting the need to let go. Emotions can hit so hard that the body responds with tangible pain, but sometimes they simply need to be allowed to wash over us like waves. When anxiety arose, I became so stuck in asking “why?” that I locked it away and intensified it, instead of allowing it to pass through me. Whenever I think about this, a line from the film Elizabethtown comes to mind: “You have five minutes to wallow in the delicious misery, embrace it, discard it and proceed.”
In the artistic process itself, I moved from two-dimensional work into three-dimensional form and then back again into two dimensions. The process was deeply healing, as it began in my sketchbook, with no real sense of where it would lead, and gradually became a visual interpretation of my state of mind. From that imagery, I decided to sculpt women at different stages of the process, and then translate them back into a two-dimensional form. After working with these emotions on such a deep level, I experienced firsthand how art therapy works and how creative practice can help a person move through suffering. I rediscovered a part of myself that I had lost through motherhood, studies, and work. In the end, the process became a full series telling the story of a woman working her way out of burnout through creation.
Unnur Gígja Ingimundardóttir (b. 1988) has completed a wide range of art courses at both Fjölbrautarskólinn í Breiðholti and Iðnskólinn í Hafnarfirði, and ultimately graduated from the Fashion Design programme at FB. She holds a B.Ed. in Primary Education with a focus on arts and crafts, and will complete her master’s degree in arts and crafts education in June 2026. Alongside her studies, she has worked as an instructor in compulsory school, first as a substitute and later as a homeroom teacher. Over the years, Unnur has always engaged in creative work in her free time — whether drawing, painting, sewing, or writing — but only now is she stepping outside the box and presenting herself as an artist.
Curator: Elvar Gunnarsson
There will be a special exhibition opening on Thursday, April 30th from 18:00-21:00 and you are welcome!
Other opening hours
Fri 1st may 16:00 - 20:00
Sat 2nd may 13:00 - 17:00
Sun 3rd may 14:00 - 17:00
LG // Litla Gallerý is sponsored by the Culture and Tourism Committee of Hafnarfjörður for this event.
Advertisement

Where is it happening?

Strandgata 19, 220 Hafnarfjörður, Iceland, Strandgata 19, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Icon
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
LitlaGaller\u00fd

Host or Publisher LitlaGallerý

Ask AI if this event suits you:

Discover More Events in Hafnarfjörður

Vort\u00f3nleikar 2026
Sat, 02 May at 04:00 pm Vortónleikar 2026

Hafnarfjarðarkirkja

Konukv\u00f6ld Vi\u00f0reisnar \u2013 B\u00fabblur, hl\u00e1tur og gott spjall!
Thu, 07 May at 07:30 pm Konukvöld Viðreisnar – Búbblur, hlátur og gott spjall!

Fornubúðir 12, 220 Hafnarfjörður, Iceland

U2 - hei\u00f0urst\u00f3nleikar \u00ed B\u00e6jarb\u00ed\u00f3i
Fri, 08 May at 08:00 pm U2 - heiðurstónleikar í Bæjarbíói

Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður, Iceland

Deildars\u00fdningar Sch\u00e4ferdeildar HRF\u00cd 2026
Sat, 09 May at 09:00 am Deildarsýningar Schäferdeildar HRFÍ 2026

Víðistaðatún

Deildars\u00fdningar Sch\u00e4ferdeildar HRF\u00cd 2026
Sat, 09 May at 09:00 am Deildarsýningar Schäferdeildar HRFÍ 2026

Víðistaðatún

Vors\u00fdning Retrieverdeildar 2026
Sat, 30 May at 10:00 am Vorsýning Retrieverdeildar 2026

Víðistaðatún

Sumars\u00fdningar HRF\u00cd
Sat, 13 Jun at 09:00 am Sumarsýningar HRFÍ

Víðistaðatún

V\u00edkingah\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed Hafnarfir\u00f0i 2026 - Vikingfestival in Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur 2026
Tue, 16 Jun at 11:00 am Víkingahátíð í Hafnarfirði 2026 - Vikingfestival in Hafnarfjörður 2026

Víðistaðatún

KIDS SPORTS
\u00c1g\u00fasts\u00fdningar HRF\u00cd
Sat, 08 Aug at 09:00 am Ágústsýningar HRFÍ

Víðistaðatún

What's Happening Next in Hafnarfjörður?

Discover Hafnarfjörður Events