Jólaþorpið í Hafnarfirði 19. – 23. desember
Schedule
Fri, 19 Dec, 2025 at 05:00 pm to Tue, 23 Dec, 2025 at 09:00 pm
Location
Jólaþorpið í Hafnarfirði | Hafnarfjörður, GU
Advertisement
Komdu að njóta með okkur! Jólaþorpið í Hafnarfirði opnaði um síðastliðna helgi þegar ljósin voru tendruð á Cuxhaven-jólatrénu! Jólaþorpið iðar allt af lífi og fjöri fyrir jólin og fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsin eru fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun. Þar er tilvalið að leita að hinni fullkomnu jólagjöf á meðan þú nýtur gómsætra veitinga sem ylja að innan. Jólasveinarnir koma í heimsókn um helgar og Grýla verður einnig á vappi um bæinn á sunnudögum. Strandgata breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið.?
————————————————————–
Kaffihús í Hellisgerði, Hjartasvell og tívolí ?⛸️✨
Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði verður opið allar helgar frá og með 14. nóvember.
Föstudaga frá kl. 17-20
Laugardaga frá kl. 13-20
Sunnudaga frá kl. 13-18
Mánudaginn 22.des frá kl. 17-20
Þorláksmessa frá kl. 13 - 21
Í Oddrúnarbæ í Hellisgerði verður Helliskaffi opið á föstudögum frá kl. 17-22, laugardögum frá kl. 13-22 og á sunnudögum frá kl. 13-21. Sérstök athygli er vakin á því að Hjartasvellið og tívolí við Venusarhúsið Strandgötu 11 eru opin allar helgar fram að jólum.
————————————————————–
? Föstudagur 19. desember
Kl. 19:00 Söngstund með Sveinka á Thorsplani
? Laugardagur 20. desember
Kl. 13:00 Gunnar Helgason í jólaheimsókn á bókasafni Hafnarfjarðar
Kl. 14 – 15 Gunni og Felix árita og selja nýjustu bækurnar sínar í glerhúsinu á Thorsplani
Kl. 15:00 Gunni og Felix koma okkur í jólastuð með söng og gleði á sviðinu í Jólaþorpinu
Kl. 15:30 Ungleikhúsið stígur á stokk á Thorsplani
Kl. 16:00 Menningar- og ferðamálanefnd afhendir viðurkenningar fyrir best skreyttu húsin í Hafnarfirði á sviðinu á Thorsplani
Kl. 15 - 16 Sykurpúðar á priki við Grýluhellinn hjá Pakkhúsi Byggðasafnsins
? Sunnudagur 21. desember
Kl. 14 Björnis brunabangsi mætir í Jólaþorpið og heilsar uppá káta krakka – verður á sviðinu á Thorsplani
Kl. 15 - 16 Sykurpúðar á priki við Grýluhellinn hjá Pakkhúsi Byggðasafnsins
Kl. 15 - 17 Myndataka með Sveinka á sviðinu á Thorsplani
? Mánudagur 22. desember
Kl. 13 - 19 Jólafögnuður í Nýsköpunarsetrinu
Kl. 19 Söngstund með Sveinka á Thorsplani
? Þriðjudagur 23. desember
Kl. 15:30 Jólaball með Langlegg og Skjóðu
Kl. 17:00 Jólajazz – Helga Ragnarsdóttir
Kl. 19:30 Rakel Björk syngur falleg jólalög
Kl. 19:45 Söngur jóla með Alex Óla
Kl. 20:00 Svala Björgvins og Húbba búbba
————————————————————–
?✨ Þú finnur jólaandann hjá okkur ✨?
Jólabærinn og Jólaþorpið iða allt af lífi og fjöri fyrir jólin. Fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsin á Thorsplani eru fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun.
Tilvalið er að leita að hinni fullkomnu jólagjöf í Jólaþorpinu á meðan notið er gómsætra veitinga sem ylja að innan. Jólasveinarnir koma í heimsókn allar helgar og Grýla verður á vappi um bæinn á sunnudögum.
Strandgata frá Lækjargötu að Linnetstíg breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið. Það er gert til að dreifa umferð gangandi vegfaranda um miðbæinn og tryggja öryggi allra okkar góðu gesta.
Við erum jólabærinn Hafnarfjörður
Við tökum hlýlega á móti þér og þínum
Allt um jólabæinn Hafnarfjörð ? hfj.is/jol
Fylgdu okkur á Facebook og instagram !
Advertisement
Where is it happening?
Jólaþorpið í Hafnarfirði, Miðbær Hafnarfjarðar,Hafnarfjörður, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.