HAM - Endalok alls
Advertisement
Miðasala hefst 4. september kl 12:00!
HAM: Endalok alls — Útgáfutónleikar í Eldborg
Þann 20. nóvember heldur hljómsveitin HAM tónleika í Eldborg til að fagna útkomu nýrrar breiðskífu, Endalok alls. Á tónleikunum verða flutt lög af plötunni ásamt úrvali efnis af löngum og litríkum ferli sveitarinnar.
Platan var tekin upp í Sýrlandi og Langholtskirkju í sumar undir stjórn Arnars Guðjónssonar. Að vinnslu hennar komu einnig að góðir gestir: Úlfur Eldjárn, Steinunn Eldflaug Harðardóttir og Kristjana Stefánsdóttir. Þetta einstaka tónlistarfólk mun koma fram með HAM á tónleikunum.
Platan kemur út á streymisveitum í október og á tvöföldum vínyl í nóvember. Aðdáendur HAM munu ekki aðeins fá að njóta laga af þessari nýju plötu því helstu perlur sveitarinnar verða einnig fluttar á tónleikunum. Með fulltingi góðra gesta má búast við að eldri lög hljómi í enn stærri og tilkomumeiri útsetningum en tónleikagestir eiga að venjast — kvöldið verður hrein og klár veisla.
Þetta er kvöld sem enginn aðdáandi HAM vill missa af.

Where is it happening?
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland, Reykjav
Event Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Host or PublisherHAM