From the North // Úr norðri - Vegar & Vegard | Ragga Gröndal Trad Squad
Schedule
Fri, 19 Sep, 2025 at 08:00 pm
UTC+00:00Location
Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Iceland | Kopavogur, GU
Advertisement
FROM THE NORTH // ÚR NORÐRIVegar & Vegard | Ragga Gröndal Trad Squad
Á VÖKU þjóðlistahátíð stýrir Ragga Gröndal tónlistarkona einvalaliði fjölskrúðugra og fjölhæfra tónlistarmanna, en með henni koma fram þau Unnur Birna Björnsdóttir söngkona og fiðluleikari, Guðmundur Pétursson gítarleikari og Pétur Grétarsson slagverksleikari. Kvartettinn hrærir í íslenskum þjóðlagaarfi og reiðir m.a. fram þjóðlög, tvísöngva og frumsamið þjóðlagaskotið efni í ferskum búningi.
Tveir af fremstu þjóðlagatónlistarmönnum Noregs, Vegar Vårdal, fiðlu- og harðangursfiðluleikari og þjóðdansari, og Vegard Hansen harmonikuleikari, koma fram á VÖKU með kraftmikla og dansvæna tónlist frá Noregi. Þeir hafa báðir starfað með fjölbreyttum hljómsveitum, meðal annars Gjevre, Odde & Vårdal, Skrot, Madam Jam, Sindre og co og Patrik & Vegar. Báðir hafa þeir unnið til verðlauna innan þjóðlistageirans í Noregi og voru í fremstu röð á Landsfestivalen í Noregi.
Á tónleikunum er boðið upp á einstaka innsýn í norska tónlistarhefð þar sem áheyrn mætir dansgleði, hrynþokka og bravúr.
VAKA þjóðlistahátíð 2025 fagnar lifandi hefðum dagana 15. - 21. september með fjölbreyttum viðburðum fyrir alla fjölskylduna. Á VÖKU 2025 verður í boði að hlýða á marga helstu kvæðamenn Íslands, fræðast og njóta þjóðlagatónlistar frá Íslandi og Noregi, kynna sér nýútgefin íslensk dans- og sönglög frá 19. öld, kynna sér íslenskt handverk fyrri alda sem og sækja erindi og fjölbreyttar vinnustofur um íslenska ljóðlist, íslenskt handverk, þjóðdansa, hljóðfæraleik og danstónlist frá Íslandi, Noregi og Kólumbíu. Boðið verður upp á fjölbreytta samveru í formi samsöngs, dans og samspils, og í lok hátíðar verður haldið málþing um alþýðuhljóðfæraleik í Reykjavík á fyrri öldum.
Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.
Heildardagskrá er að finna á Fb-síðu hátíðarinnar
https://www.facebook.com/events/800814385807452
//
The Ragga Gröndal Trad Squad
In this headline concert, celebrated singer Ragga Gröndal leads a diverse band of versatile musicians, including singer and fiddle player Unnur Birna Björnsdóttir, guitarist Guðmundur Pétursson, and percussionist Pétur Grétarsson. The quartet stirs up Icelandic
folk music, delivering folk songs, Icelandic tvísöngur harmony singing and original folk-inspired material in their own fresh settings.
Vegar & Vegard
Vökufélagið is very happy to welcome these two award winning folk musicians from Norway to this year's Vaka Festival. Vegar Vårdal, fiddle, hard-rock fiddle player and folk dancer, and accordionist Vegard Hansen, have both worked with diverse bands, including Gjevre, Odde & Vårdal, Skrot, Madam Jam, Sindre og co, and Patrik & Vegar. They have been in the forefront of the Landsfestivalen folk dance music festival in Norway.
On the occasion of the publication of the Danslag Jónasar book, they will feature 19th century Icelandic dance music from the book, along with music from the Faroe Islands, Shetland, Orkney and Norway. This concert will offer a unique insight into Icelandic and Norwegian musical traditions where listening, dancing joy, rhythmic charm and bravura meet.
Advertisement
Where is it happening?
Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Iceland, Hamraborg 6, 200 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, IcelandEvent Location & Nearby Stays: