Fjallabrall
Advertisement
Fjallabrall hefur fest sig í sessi sem gríðarlega vinsæll gönguhópur innan Útivistar síðan hann fór í gang á haustdögum 2022.
Hópurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa einhverja reynslu af útivist og fjallgöngum. Erfiðleikastig ferða er 1-2 skór. Miðað er við að dagsferðir séu ekki meira en um 15 km og uppsöfnuð hækkun í ferðum ekki meiri en um 600 metrar.*
Á haustönninni mun hópurinn ganga átta sinnum saman en farnar verða fjórar kvöldferðir og fjórar dagsferðir. Fyrsta ferð haustannarinnar, á Sandsfjall í Kjós, verður opin öllum sem vilja koma og máta sig við hópinn og okkur fararstjórana.
Miðað er við að fólk fari á eigin bílum í ferðir (nema í Bláfell á Kili þar sem farið verður í rútu). Í kvöldgöngunum hittist hópurinn kl. 18 og í dagsgöngunum hittist hópurinn ýmist kl.8 eða kl. 9, í báðum tilvikum er boðið að sameinast í bíla og svo keyrir hópurinn í samfloti að upphafstað göngu.
Í ferðunum er aðal áherslan á að öllum líði vel. Allir eiga að geta notið sín í hópnum og mikið er lagt upp úr því að njóta útiverunnar saman. Þátttakendur fræðast um ýmsa hluti tengda göngum og útivist auk þess sem lagt er upp úr því að deila fróðleik tengdum svæðinu sem ferðast er um.
Innifalið í skráningu er fararstjórn í allar ferðir og rúta í dagsferð á Bláfell að Kili.
Fararstjórar eru Fríða Brá Pálsdóttir, Hanna Guðmundsdóttir og Tryggvi Guðmundsson.
Dagskrá https://www.utivist.is/ferdir-og-dagskra/fjallabrall-utivistar/vidburdur/6798/fjallabrall-utivistar

Where is it happening?
Katrínartún 4, 105 Reykjavík, Iceland, Katrínartún 4, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Event Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Host or PublisherÚtivist