Ferðasöngvar og frumflutningur

Schedule

Sun, 19 Apr, 2026 at 06:00 pm

UTC+00:00

Location

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Reykjavík, RE

Advertisement
Sunnudaginn 19. apríl kl. 18:00 verða haldnir ljóðatónleikar í sal Listasafns Sigurjóns Ólafssonar undir yfirskriftinni “Ferðasöngvar og frumflutningur”. Þar koma fram baritónsöngvarinn Hrólfur Sæmundsson og píanóleikarinn Nína Margrét Grímsdóttir en þau hafa unnið saman gegnum árin m.a. í tónleikaröðunum Reykjavík Classics í Hörpu og Klassík í hádeginu Gerðubergi. Á efnisskránni þann 19. apríl verður ljóðaflokkurinn “Songs of Travel” (1901-1904) eftir Ralph Vaughan Williams við ljóðatexta Robert Louis Stevenson frá árinu 1827. Einnig flytja þau Hrólfur og Nína Margrét ljóðaflokkinn “Six Songs óp. 25” (1876) eftir Edvard Grieg við ljóðatexta Henrik Ibsen. Hápunktur tónleikanna verður frumflutningur ljóða eftir Hrólf Sæmundsson. Aðgangseyrir er kr. 4500 í forsölu og kr. 5500 við innganginn. Húsið opnar kl. 17:30. Hægt verður að nálgast miða í forsölu á opnunartíma Listasafns Sigurjóns laugardaga og sunnudaga kl. 13:00-17:00.
Hrólfur Sæmundsson hefur um árabil sungið stærstu
hlutverk óperubókmenntanna við óperuhús víða um heim.
Hans helstu hlutverk þar hafa verið Macbeth, Wozzeck,
Rigoletto, Germont (La Traviata), Don Carlo (La forza del
destino), Don Carlo (Ernani) Miller (Luisa Miller), Rodrigo
(Don Carlo), Ford Falstaff), Paolo (Simone Boccanegra),
Escamillo (Carmen),Telramund (Lohengrin), Wolfram (Tannhäuser),
Alberich, (Rheingold og Götterdämmerung) Kurwenal (Tristan und
Isolde), Lord Ruthven (Der Vampyr), Michele (I’ll Tabarro),
Sharpless (Madama Butterfly), Onegin (Eegene Onegin),
Tomsky (Pique Dame) Figaro (Il barbiere di Siviglia), Don
Pizarro (Fidelio), Ori í “Au Monde” eftir Philippe Boesmans,
Greifinn (Brúðkaup Fígarós), Don Giovanni og Don Alfonso
(Cosi fan tutte), auk fjölda annarra.
Hann hefur einnig komið fram á Íslandi, við Íslensku
Óperuna, í Þjóðleikhúsinu, og á fjölda tónleika um allt land.
Hann hefur sungið inn á upptökur hér heima og erlendis, til
dæmis hina nýútgefnu óperu „Alpenkönig und
Menschenfeind“ eftir Leo Blech. Hrólfur syngur þar
titilhlutverkið. Þessi upptaka hefur einnig verið leikin í
útvarpi í yfir 60 löndum, þar á meðal á Íslandi.
Nýverið hóf Hrólfur frumraun sína við Teatro Real í Madrid
þar sem hann söng í óperu Weinbergs, “Die Passagierin”.
Einnig lék hann og söng hlutverk Rigoletto í nýútkominni
kvikmynd. Næsta stórverkefni Hrólfs er hlutverk Wotans í
heildarfrumflutningi Niflungahringsins í Eistlandi.
https://www.operabase.com/hrolfur-saemundsson-a7120/en
Nína Margrét Grímsdóttir er stofnandi og listrænn stjórnandi tónleikaraða í Hörpu, Salnum og Gerðubergi 2001-2019. Hljóðritun hennar fyrir BIS Records 2001 af píanóverkum dr. Páls Ísólfssonar var tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna og útgefin doktorsritgerð Nínu Margrétar um píanóverk Páls ásamt meistaraprófsritgerð hennar um íslenska píanótónlist hafa vakið verðskuldaða athygli á menningararfi landsins erlendis. Nína Margrét hefur komið fram á tónlistarhátíðum hérlendis og erlendis m.a. Listahátíð, Reykholtshátíð, Myrkum músíkdögum, Azaleu Festival og Whitehorse Circumpolar Festival. Hún hefur einnig hlotið styrki og viðurkenningar m.a. frá ráðuneytum mennta- og menningarmála, Reykjavíkurborg, American-Scandinavian Foundation, American-Scandinavian Society og British Council.

Nína Margrét er aðjúnkt við tónlistardeild Listaháskóla Íslands, deildarstjóri framhaldsdeildar og verkefnastjóri Alþjóðasamstarfs Erasmus+ við Tónskóla Sigursveins, prófdómari fyrir Prófanefnd Tónlistarskólanna og kennari við píanódeild Tónlistarskóla Kópavogs. Hún hefur enn fremur kennt við Tónlistarskólann í Reykjavík, University of Agder, University of Karlstad, University of Warmia and Mazury í Olsztyn, Vienna Classic Stars International Festival og Bloomingdale School of Music í New York og hafa píanónemendur hennar unnið til fjölda verðlauna í innlendum og alþjóðlegum píanókeppnum. Á þessu ári var hún gestakennari við Stanisław Moniuszko Academy of Music í Gdańsk, dómari í Malmö Yamaha Piano Competition og í WPTA Iceland International Piano Competition í Salnum. Nína Margrét er forseti WPTA Iceland (World Piano Teachers Association), “WPTA-appointed judge” og stjórnarmeðlimur í Félagi íslenskra píanóleikara.
https://www.youtube.com/@NinaMargretGrimsdottir
Advertisement

Where is it happening?

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestangi 71, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Icon
Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Nina Margret Grimsdottir

Host or Publisher Nina Margret Grimsdottir

Ask AI if this event suits you:

Discover More Events in Reykjavík

Lei\u00f0s\u00f6gn s\u00fdningarstj\u00f3ra | Snertifletir \/ Curator\u2019s Tour | Affinities of Form
Sun, 19 Apr at 02:00 pm Leiðsögn sýningarstjóra | Snertifletir / Curator’s Tour | Affinities of Form

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland

ART EXHIBITIONS
B\u00ed\u00f3teki\u00f0: Frankenstein
Sun, 19 Apr at 03:00 pm Bíótekið: Frankenstein

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

K-POP INFINITY
Sun, 19 Apr at 03:00 pm K-POP INFINITY

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

ENTERTAINMENT PERFORMANCES
B\u00ed\u00f3teki\u00f0: Bl\u00f3\u00f0rautt S\u00f3larlag
Sun, 19 Apr at 05:00 pm Bíótekið: Blóðrautt Sólarlag

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

B\u00ed\u00f3teki\u00f0 - Kie\u015blowski: Trois Couleurs: Rouge \/ Trzy kolory: Czerwony
Sun, 19 Apr at 07:00 pm Bíótekið - Kieślowski: Trois Couleurs: Rouge / Trzy kolory: Czerwony

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Nemendat\u00f3nleikar - Lj\u00f3\u00f0a- og ar\u00edudeild
Tue, 21 Apr at 06:30 pm Nemendatónleikar - Ljóða- og aríudeild

Söngskólinn í Reykjavík

M\u00e1l\u00feing og m\u00f3ttaka til hei\u00f0urs Herd\u00edsi Sveinsd\u00f3ttur, pr\u00f3fessors
Wed, 22 Apr at 02:00 pm Málþing og móttaka til heiðurs Herdísi Sveinsdóttur, prófessors

Veröld, hús Vigdísar

Mannakorn | S\u00ed\u00f0asta vetrardag
Wed, 22 Apr at 08:00 pm Mannakorn | Síðasta vetrardag

Háskólabíó

\u00d6ll ver\u00f6ldin er leiksvi\u00f0 - leikh\u00fast\u00f3nlist Hj\u00e1lmars H. Ragnarssonar
Wed, 11 Mar at 08:00 pm Öll veröldin er leiksvið - leikhústónlist Hjálmars H. Ragnarssonar

Harpa Concert Hall

MUSIC ENTERTAINMENT
Ragga Gr\u00f6ndal \u00e1 Hotel Holti
Thu, 12 Mar at 06:00 pm Ragga Gröndal á Hotel Holti

Hotel Holt, Reykjavik

MUSIC ENTERTAINMENT
Kian Soltani leikur Lutos\u0142awski
Thu, 12 Mar at 07:30 pm Kian Soltani leikur Lutosławski

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

ENTERTAINMENT CONCERTS
Monomyth Presents No Cameo - bkpm - FR\u00ddS
Thu, 12 Mar at 08:00 pm Monomyth Presents No Cameo - bkpm - FRÝS

RVK Bruggfélag Tónabíó

ART
Fimmtudagseymd \u00e1 Lemmy
Thu, 12 Mar at 08:00 pm Fimmtudagseymd á Lemmy

LEMMY

MUSIC ENTERTAINMENT
Halld\u00f3r Eldj\u00e1rn
Thu, 12 Mar at 08:00 pm Halldór Eldjárn

Óðinsgata 2, 101 Reykjavík, Iceland

CONCERTS MUSIC
T\u00f3nleikar S\u00f6ngbr\u00e6\u00f0ra \u00e1 Akranesi
Thu, 12 Mar at 08:00 pm Tónleikar Söngbræðra á Akranesi

Tónberg

Kirtan me\u00f0 Glimmer Mysterium Blissband
Thu, 12 Mar at 08:00 pm Kirtan með Glimmer Mysterium Blissband

Yogavin

Jazz \u00ed Dj\u00fapinu \/\/ Kristbj\u00f6rn Helgason
Thu, 12 Mar at 08:30 pm Jazz í Djúpinu // Kristbjörn Helgason

Veitingahúsið Hornið

MUSIC ENTERTAINMENT
Elgar & Eldfuglinn
Fri, 13 Mar at 06:00 pm Elgar & Eldfuglinn

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

MUSIC ENTERTAINMENT
Joseph Branciforte + Jozef Dumoulin: Iterae
Fri, 13 Mar at 08:00 pm Joseph Branciforte + Jozef Dumoulin: Iterae

Óðinsgata 2, 101 Reykjavík, Iceland

MUSIC ENTERTAINMENT
MYRKVI\u00d0I - S\u00d3T - CAPUT CORVI \u00e1 Lemmy
Fri, 13 Mar at 09:00 pm MYRKVIÐI - SÓT - CAPUT CORVI á Lemmy

LEMMY

What's Happening Next in Reykjavík?

Discover Reykjavík Events