EX LIBRIS IV – Þorra-Edda

Schedule

Sat, 06 Feb, 2027 at 12:00 pm

UTC+00:00
Location

Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík, Iceland | Reykjav, RE

Advertisement
Tónleikarnir fara fram á bókasafninu í Eddu og tilheyra tónleikaröðinni Ex Libris.
Hljómsveitin Umbra flytur íslensk þjóðlög í eigin útsetningum og frumsamið efni þar sem texti er sóttur í miðaldabókmenntir.
Flutt verður frumsamið efni úr eddukvæðum og sérstökum sjónum beint að Völuspá. Enn fremur verða fluttir sagnadansar þar sem ævintýralegar frásagnir verða glæddar einstökum hljóðheimi Umbru. Áhorfendur munu kynnast sagnaarfi og kveðskap liðinna alda í gegnum tóna og tal í mikilli nánd.

Nánar um Umbru:
Umbra hefur hlotið lof gagnrýnenda fyrir einstakan hljóm og framúrskarandi útsetningar á þjóðlagatónlist.
Hljómsveitin var stofnuð árið 2014 af fjórum tónlistarkonum og sameinar íslenska þjóðlagatónlist, miðaldatónlist og frumsamdar tónsmíðar í tilfinningaríkum, vandlega útfærðum flutningi. Hópurinn hefur komið fram á fjölmörgum hátíðum í Evrópu og Asíu og gefið út fimm plötur. Platan Solstitium frá 2018 var valin plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum.
Meðlimir Umbru eru:
Alexandra Kjeld, kontrabassi og söngur
Arngerður María Árnadóttir, keltnesk harpa, harmoníum/orgel og söngur
Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, fiðla, langspil og söngur
Lilja Dögg Gunnarsdóttir, aðalsöngur, flautur og slagverk
Aðgangseyrir 2.500 kr.

Um tónleikaröðina Ex Libris:
Verið velkomin að hlýða á kammertónlist í hinum glæsilega bókasal Eddu í vetur.
Í tónleikaröðinni er annars vegar lögð áhersla á samtímatónlist og hins vegar á nýsköpun í flutningi eldri tónlistar, bæði þjóðlegrar tónlistar og barokks.
Allir tónleikarnir fara fram í bókasafni Eddu á laugardögum og hefjast klukkan 12 og standa í tæpa klukkustund.
Dagskrá vetrarins: https://arnastofnun.is/is/ex-libris-tonleikarod
Advertisement

Where is it happening?

Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík, Iceland, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
\u00c1rnastofnun
Host or PublisherÁrnastofnun

Ask AI if this event suits you