Dead Air
Schedule
Wed, 04 Mar, 2026 at 08:00 pm to Thu, 05 Mar, 2026 at 08:00 pm
UTC+00:00Location
Tjarnarbíó (Reykjavík, Iceland) | Reykjavík, RE
Dead Air aftur í Tjarnarbíó
Eftir fjölsóttar og vel sóttar sýningar í Tjarnarbíó í nóvember sl. snýr hið rómaða einleikjaverk Dead Air aftur á svið Tjarnarbíós dagana 4. og 5. mars 2026 kl. 20:00 með upplestri úr Dead Air bókinni sem verður gefinn út samdægurs og boðið upp á umræðu með gestum um áhrif gervigreindinni á syrgjendur.
Verkinu hefur verið lýst sem tragikómískum tæknitrylli um sorg, missi og gervigreind sem talar fyrir framliðna. Einleikurinn er eftir Álfrúnu Rose og Anna María Tómasdóttir leikstýrir.
Dead Air fór í sigurför á Edinborgarhátíðinni í sumar þar sem The Guardian lýsti verkinu sem: „Kvenkyns Hamlet… grípandi frásögn.“ The Scotsman gaf henni ⭐⭐⭐⭐ 4 stjörnur og sagði sýninguna sameina: „fallega sorg, spaugilega persónusköpun og hinn kalda, kapítalíska heim AiR.“
Leikhúsrýnar á Íslandi hafa tekið í sama streng. „Vel skrifað, bæði meinfyndið og lúmskt nærgöngult. Snjallt og fimlega unnið úr tilbrigði við einleiksformið. Og flutt af mikilli og að því er virðist áreynslulausri fimi af höfundinum,“ sagði Þorgeir Tryggvason í ⭐⭐⭐⭐ dómi hjá Morgunblaðinu.„Ég myndi láta gera þetta að sjónvarpsseríu ef ég réði heiminum,“ sagði Sjöfn Asare í Lestrarklefanum. Pistlahöfundurinn Sif Sigmarsdóttir sagðist hiklaust gefa verkinu fimm stjörnur: „Jafnfyndið og átakanlegt.“
Um DEAD AIR
Dead Air segir frá Alfie, sem í örvæntingu reynir að ná sambandi við látinn föður sinn í gegnum AiR – gervigreindarspjallforrit sem lofar að „halda lífi í samtalinu“. Ferðin sem tekur við er hjartnæm, beitt og beiskfengin svört kómedía sem skoðar árekstur sorgar, tæknihræðslu og kapítalísks veruleika.
Hugmynd verksins á rætur í persónulegri reynslu höfundar. Eftir andlát föður síns horfði Álfrún á heimildarmynd um gervigreindarþjónustur sem líkja eftir röddum látinna – og uppgötvaði bæði ógnvekjandi og huggandi möguleika slíkrar tækni. Úr varð djúp, nútímaleg draugasaga um hvernig við reynum að halda í minningar og hvernig sársaukafull reynsla getur hamlað okkur í að halda áfram.
Since Alfie’s dad died, he’s visited everyone’s dreams but hers. Rude. Desperate to talk to him, she uses AiR, an AI chatbot for the dead. A heartfelt, funny, and glitchy deep dive into grief, ghosts, and digital obsession. Written and performed by Alfrun Rose, Dead Air is a play with dark humor and offbeat storytelling. Hamlet, but with more Wi-Fi and fewer curtains. And just like grief itself, it refuses to let you go. Directed by: Anna María Tómasdóttir Production Company: Double Daughter Productions 16+ Featured in The Guardian "Female Hamlet...absorbing storytelling." 4* The Scotsman “Moving writing and performance beautifully blends her grief, a comic cast & the cool, corporate world of AiR.” 5* therealchrisparkle “Full of irresistibly funny moments of dark comedy, mixed with powerful emotions. A superb tour de force that keeps you riveted throughout. Hugely entertaining.” 5* Theatre and Arts Reviews “From the heart… beautifully written… emotional and humorous.” 4* Entertainment Now "Rose will take you on an amusing and dark ride into the unexpected." British Comedy Guide Recommended “Clever, funny, touching, superbly acted and troublingly prescient.” Pick of the Fringe, CNS Theatre "Excels...I would want to see this again. Has been getting praise all round and it is thoroughly deserved. Go and see it, you won't regret it."
Where is it happening?
Tjarnarbíó (Reykjavík, Iceland), Tjarnargata 12, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, IcelandEvent Location & Nearby Stays:



















