Blue Lotus Te Seremónía 🪻Yoga Nidra & Tónheilun

Schedule

Tue Sep 29 2026 at 07:30 pm to 09:00 pm

UTC+00:00
Location

REYR Studio | Reykjav, RE

Advertisement
Þér er boðið í helga og umbreytandi stund þar sem við sameinum forna visku Blue Lotus blómsins, djúpa slökun Yoga Nidra hugleiðslu ❤
Blue Lotus hefur í þúsundir ára verið notað í helgisiðum fyrir ró, hjartaopnun, innsæi og draumavinnu. Í þessari te-seremóníu munum við drekka Blue Lotus te og leyfa líkama og huga að mýkjast inn í djúpt slökunarástand.
Yoga Nidra hugleiðsla leiðir þig í ástand milli vöku og svefns, þar sem taugakerfið endurstillist, undirmeðvitundin opnast og hugurinn verður móttækilegur fyrir innsæi og heilun.
Mjúkt tónferðalag sem aðstoðar þig við að ná enn betri slökun inn í þessa stund.
Blue Lotus Te er þekkt fyrir að veita líkamanum ró, bæta líðan og svefn.
Þessi stund er fyrir þig ef þú:
- vilt djúpa hvíld og innri ró
- vilt tengjast innsæi þínu og draumaheimi
- vilt skapa nærandi tíma fyrir sjálfa/n þig
Komdu í þægilegum fatnaði, við erum með augnhvílur en ef þú átt þína uppáhalds er gott að taka hana með & vatnsbrúsa.
Verð: 6900 kr
Við hlökkum til að sjá þig Kolbrún og Danni.
​Þú tryggir þér pláss með því að kaupa miða í "tickets"
Hlökkum til að taka á móti ykkur
Viðburðurinn er haldinn í REYR Studio Fiskislóð 31 B, gengið inn bílaþvottastöðvarmegin.
...
Kolbrún Ýr er heilari, Reikimeistari, Hjartaheilari, Kundalini - Reiki og KAP orkumeðferðaraðili, tónheilari, Hata, Yin, Nidra jógakennari, öndunarleiðbeinandi. Nánari upplýsingar á lifdubeturmedther.is
Danni TRPTYCH er Tónlistarmaður, Tónheilari og Reikimeistari.
trptych.com
Þú finnur fleiri viðburði á www.lifdubeturmedther.is/vidburdir
Advertisement

Where is it happening?

REYR Studio, Fiskislóð 31, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Event Location & Nearby Stays:

Know what’s Happening Next — before everyone else does.
Lif\u00f0u betur me\u00f0 \u00fe\u00e9r
Host or PublisherLifðu betur með þér

Ask AI if this event suits you