Aðalfundur
Schedule
Thu, 28 May, 2026 at 05:00 pm
UTC+00:00Location
Strandgata 43, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland | Hafnarfjörður, GU
Advertisement
Aðalfundur FFF verður haldinn 28.maí n.k. Tillögur um lagabreytingar verða að hafa borist stjórn félagsins 7 dögum fyrir aðalfund eða þann 20.maí n.k.
Stjórn félagsins skal kynna tillögur að lagabreytingum með bréfi til félagsmanna a.m.k. 3 dögum fyrir aðalfund.
Stjórnarkjör fer fram á aðalfundi. Stjórn félagsins skal skipuð formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda. Auk þess skulu kosnir tveir varamenn.
Stjórnarkjöri skal haga þannig:
· Kjósa skal formann í sérstakri kosningu og er kjörtímabilið tvö ár.
· Kjósa skal 4 stjórnarmeðlimi að auki sem skipta með sér verkum. Kjörtímabilið eru tvö ár og eru tveir í kjöri annað hvert ár.
· Kjósa skal 2 í varastjórn og er kjörtímabilið eitt ár.
· Kjósa skal 2 skoðunarmenn reikninga og kjörtímabilið er eitt ár.
Í ár erum við með lausar eftirfarandi stöður:
Staða tveggja stjórnarmeðlima.
Staða tveggja varamanna.
Staða tveggja skoðunarmanna reikninga.
Endilega sendi okkur tölvupóst ef þið hafið áhuga á að bjóða ykkur fram.
Dagskrá aðalfundar:
Skýrsla stjórnar
Skýrslur hópa og nefnda
Reikningar félagsins
Starfsáætlun og fjárhagsáætlun næsta árs
Árgjald
Lagabreytingar og skipulag
Kosning stjórnar og varamanna
Kosning skoðunarmanna reikninga
Önnur mál
Advertisement
Where is it happening?
Strandgata 43, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Strandgata 43, 220 Hafnarfjarðarkaupstaður, Ísland, Hafnarfjörður, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.





