Að tendra hinn sanna jólaanda
Schedule
Tue Dec 16 2025 at 07:30 pm to 08:45 pm
UTC+00:00Location
Garðatorg | Kopavogur, GU
Advertisement
Leiðbeinandi: Stefanía ÓlafsdóttirStaðsetning: Lótushús Garðatorgi, miðbæ Garðabæjar
Í aldaraðir hafa ólíkir menningarheimar fagnað sigri ljóssins yfir myrkrinu með ljósahátíðum. Í kristinni hefð tákna jólin fæðingu ljóssins sem ber mannkyninu von og endurnýjun. Aðventan getur samt verið annasamur og krefjandi tími fyrir marga, með sínum fjölmörgu verkefnum og vaxandi útgjöldum. Einnig geta ýmsar flóknar tilfinningar, gamlar sorgir og einmanaleiki gert vart við sig á tímum þegar minningar og hefðir eru gjarnan í hávegum höfð. Því getur verið auðvelt að missa sjónar á dýpri merkingu þessarar fallegu árstíðar.
Í þessum tíma munum við fjalla um hinn sanna kjarna jólanna og kanna leiðir til að hlúa að ljósinu innra með okkur og halda því björtu mitt í amstri hátíðanna. Á dagskránni verða einnig leiddar hugleiðslur, heitt te og léttar veitingar sem næra bæði líkama og sál.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir en skráning er nauðsynleg og fer fram hér: https://lotushus.is/dagskra-skraning/
Advertisement
Where is it happening?
Garðatorg, Garðatorg 3, 210 Garðabær, Ísland, Kopavogur, IcelandEvent Location & Nearby Stays:
Know what’s Happening Next — before everyone else does.






